Lífeyrissjóður Vestmannaeyja var stofnaður í kjölfar kjarasamninga aðila vinnumarkaðarins á árinu 1969 og hefur starfað frá 1. janúar 1970. Séreignadeild sjóðsins hefur starfað frá 1. janúar 1999. Sjóðurinn fékk starfsleyfi fjármálaráðuneytisins hinn 30. september 1999 og starfar samkvæmt lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða með síðari breytingum. Hinn 1. júlí 2005 tók sjóðurinn upp aldurstengda réttindaávinnslu, en fram að þeim degi var ávinnslan óháð aldri. Öll áunnin réttindi sjóðfélaga hinn 30. júní 2005, eru varðveitt óbreytt samkvæmt þeim reglum sem giltu þann dag. Samþykktir sjóðsins voru síðast staðfestar af fjármálaráðuneytinu 27. ágúst 2007.
Sjóðurinn er eigandi að 33,3% hluta í fjármálafyrirtækinu Jöklar-Verðbréf hf., sem annast að verulegu leyti verðbréfaviðskipti og eignaumsýslu fyrir lífeyrissjóðinn: http://joklar.is
Sjóðurinn er aðili að Landssamtökum lífeyrissjóða: http://www.LL.is
Sjóðurinn er aðli að samstarfssamningi um Greiðslustofu lífeyrissjóða, sem annast ýmis verkefni er snerta lífeyrismál samkvæmt þjónustusamningi.