Sýndu fyrirhyggju með séreignarparnaði hjá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja.
Nú er rétti tíminn til að hefja séreignarsparnað með viðbótariðgjaldi í lífeyrissjóð. Því fyrr sem byrjað er að spara því betra. Séreignarsparnaður einstaklings getur numið allt að 4,0% af launum og launagreiðandi greiðir 2,0% mótframlag. Heildarsparnaðurinn getur því numið allt að 6,0% af launum. Það munar um minna ! Á tímabilinu frá 1. mars 2009 til 1. október 2010 er heimilt að greiða 6% framlag í viðbótarlífeyrissparnað og draga fjárhæðina frá skattskyldum tekjum.

Frá 1. janúar 1999 hefur einstaklingum verið heimilt að verja 2,0% viðbótariðgjaldi af launum í frjálsan lífeyrissparnað og draga þá fjárhæð frá skattskyldum tekjum sínum. Á árinu 2000 var heimildin aukin í allt að 4,0% af launum. Frá 1. maí 2000 hófu launagreiðendur að borga 1,0% mótframlag að auki, sem hækkaði í 2% frá 1. janúar 2002. Frá þeim tíma tvöfalda mótframlögin sparnað þeirra sem greiða 2,0% viðbótariðgjald af launum í viðbótarlífeyrissparnað. Viðbótarlífeyrissparnaður ásamt vöxtum er til ráðstöfunar eftir að einstaklingur hefur náð 60 ára aldri.
Séreignadeild Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja býður upp á tvær ávöxtunarleiðir í lífeyrissparnaði, Safn I og Safn II.
Árangur séreignadeildar hefur yfirleitt verið góður, en hún hefur starfað frá árinu 1999.
Nafnávöxtun deildarinnar var 12,36% árið 2009, meðaltal 5 ára 8,63% og meðaltal 10 ára 10,26%.