Sími: 481-1008, Fax: 481-2783, Kt: 580572-0229
Current Articles
Ársfundurinn var haldinn 7. maí 2009. Arnar Sigurmundsson flutti skýrslu stjórnar og kom m.a. fram í máli hans að árið 2008 hefði reynst erfiðasta rekstrarár íslensku lífeyrissjóðanna í nær 40 ára sögu þeirra, vegna fjármálakreppu og bankahruns á árinu.
Samkvæmt afkomutölum sjóðanna virðist Lífeyrissjóður Vestmannaeyja hafa staðist fjármálahamfarirnar best innlendra lífeyrissjóða.
Tryggingafræðileg staða sjóðsins er allgóð og engin þörf lækkunar á réttindum eða lífeyri.
Ársfundurinn samþykkti breytingar á samþykktum sjóðsins, sem flestar eru gerðar vegna breytinga á lögum um lífeyrissjóði.